Karlmaður lést og dóttir hans slasaðist alvarlega er lítil flugvél hrapaði á strönd í Flórída þar sem feðginin voru á göngu.
Feðginin voru á göngu um Venice-strönd er vélin, sem var af tegundinni Piper Cherokee, hrapaði.
Maðurinn var 36 ára og dóttir hans er níu ára, segir í frétt Sky-sjónvarpsstöðvarinnar um málið.
Lífgunartilraunir hófust þegar í stað en maðurinn var síðar úrskurðaður látinn á staðnum. Dóttir hans var flutt á sjúkrahús og eru meiðsl hennar alvarleg.
Flugmaðurinn og farþegi hans slösuðust ekki.