Baráttumenn fyrir réttindum samkynhneigðra í Úganda komu af stað undirskriftasöfnun í dag þar sem þess er krafist að hin hörðu og umdeildu lög<span> er banna samkynhneigð verði tekin fyrir af stjórnlagadómstólnum í Úganda. </span>
<span>Samkvæmt lögunum, sem Yoweri Museveni, forseti Úganda, staðfesti í febrúar, er hægt að dæma „síbrotamenn“ í lífstíðarfangelsi fyrir samkynhneigð. Lögin kveða einnig á um tilkynningaskyldu til yfirvalda vegna grunsemda um samkynhneigð, og banna hvers kyns jákvæða umfjöllun um eða stuðning við samkynhneigð.</span>
Baráttumennirnir telja að lögin hafi farið í gegnum þingið án nauðsynlegra atkvæða og séu því formlega gölluð. Þá telja þeir að lögin brjóti gegn stjórnarskrárbundnum rétti manna til friðhelgi einkalífs og virðingar auk þess að fela í sér mismunun og óvenjulega grimma og vanvirðandi meðferð.
Lögmaður hópsins sagðist vongóður eftir fyrirtöku málsins. Hann sagði að ef lögin yrðu dæmd formlega gölluð myndu stoðir þeirra hrynja.