Fimm ára gömul stúlka sem var í heimsókn hjá ættingjum í austurhluta Idaho-ríkis í Bandaríkjunum lést eftir að hafa verið skotin af öðru fimm ára gömlu barni á miðvikudag.
Að sögn lögreglumanns komu sjúkraflutningamenn á vettvang um klukkan þrjú á miðvikudaginn og færðu stúlkuna á sjúkrahús í nágrenninu. Þá hefur starfsfólk sjúkrahússins staðfest að stúlkan hafi látist síðar um kvöldið.
Að sögn lögreglu var fullorðið fólk í húsinu þegar skotinu var hleypt af en voru í öðru herbergi. Ekki hefur verið gefið upp hvernig börnin fengu byssuna í hendur. Málið er talið vera slys og að börnin hafi verið að leik þegar harmleikurinn átti sér stað.
Fox News greinir frá þessu.