Chandra Mohan Sharma, indverskur aðgerðasinni sem talinn var af, fannst í Bangalore þar sem hann starfaði undir dulnefni. Lögreglan telur Sharma hafa sett dauða sinn á svið til þess að hefja nýtt líf með ungri konu.
Bíll Sharma fannst nærri höfuðborg Indlands, Delhi. Lík af manni var í bílnum sem kveikt hafði verið í. Fjölskyldumeðlimir Sharma sem báru kennsl á líkið töldu hann hafa verið drepinn fyrir að svipta hulunni af spillingu stjórnvalda.
Eiginkonu Sharma grunaði hins vegar að dauði hans tengdist sambandi hans við konu sem hafði verið í sambandi við hann undanfarna mánuði og hvarf mánuði eftir að Sharma átti að hafa látist.
Sharma var handtekinn í Bangalora þar sem hann starfaði í bílaverksmiðju undir öðru nafni. Hann hafði rakað af sér hárið og skipt um nafn til þess að villa á sér heimildir.
Sharma er ekki aðeins grunaður um að hafa sett dauða sinn á svið heldur mun hann hafa drepið heimilislausan mann og komið honum fyrir í bíl sínum áður en hann kveikti í honum með hjálp ættingja sem lögreglan segir nú á flótta.
Sharma neitar öllum ásökunum.