Lögreglan stöðvaði för tveggja ökumanna í gærkvöldi. Annar reyndist ölvaður og hinn dópaður.
Lögreglan stöðvaði ökumann vegna gruns um að æki undir áhrifum fíkniefna um kvöldmatarleytið í gær. Hann var látinnlaus að lokinni blóðsýnatöku en auk þess að vera dópaður var hann einnig sviptur ökuréttindum.
Annar ökumaður var síðan stöðvaður á ellefta tímanum í gærkvöldi vegna gruns um ölvunarakstur. Honum var sleppt að lokinni blóðsýnatöku.