David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, segir að það komi ekki til greina að Bretland greiði Evrópusambandinu viðbótargreiðslu upp á 1,7 milljarða evra, sem samsvarar um 330 milljörðum króna, eftir rúman mánuð.
„Ef fólk heldur að ég ætli að greiða þennan reikning þann 1. desember, þá á það von á öðru,“ sagði Cameron, sem er staddur í Brussel, höfuðborg Belgíu og höfuðstað ESB. „Þetta er ekki að fara gerast,“ bætti hann við, en Cameron hefur brugðist reiðilega við þessari kröfu. Fjallað er um þetta á vef BBC.
Greint var frá því fyrr í dag, að Bretum væri gert að greiða hærri upphæð til ESB þar sem staða efnahagsmála er betri en áður var talið. Þetta er niðurstaða ESB eftir að nýir útreikningar voru birtir sem sýna hvað hvert aðildarríki á að greiða en greiðslan byggist á vergum þjóðartekjum. Þetta þýðir að Bretland þarf að greiða um 20% ofan á þá 8,6 milljarða punda sem breska ríkið greiðir árlega.
Cameron segir að þetta sé algjörlega óviðunandi og svona eigi ESB ekki að haga sér. Hann spyr og krefst svara hvernig sambandið komst að þessari niðurstöðu.
Fjármálaráðherrar ESB-ríkjanna hafa orðið við kröfu Breta um neyðarviðræður vegna málsins.
Cameron segir að hann sé reiður og að meirihluti bresks almennings muni ekki sætta sig við að þurfa að greiða svo háa fjárhæð.
„Við munum ekki allt í einu grípa ávísanaheftið og skrifa ávísun upp á tvo milljarða evra. Það mun ekki gerast.“