Hæstiréttur Bandaríkjanna synjaði í dag áfrýjun mála um bann við hjónaböndum samkynhneigðra í sex ríkjum. Þar með hefur dómstólinn enn ekki ákveðið í eitt skipti fyrir öll hvort að ríki megi banna slík hjónabönd. Í kjölfar þessarar ákvörðunar munu samkynhneigð pör hafa öll sömu réttindi og gagnkynhneigð pör í þessum ríkjum, og mega því giftast.
Með því að synja áfrýjun mála sem snertu Alaska, Arizona, Idaho, Norður-Karólínu, Vestur-Virginíu og Wyoming, stendur ákvörðun lægra dómsstigs sem hafði hafði hafnað banni við hjónabandi samkynhneigðra í ríkjunum sex. Nú er tala þeirra ríkja þar sem samkynhneigð pör mega giftast því komin upp í 32, auk höfuðborgarinnar.
„Með hverju ríki sem löglega viðurkennir samkynhneigð pör þá færist þjóð okkar nær því að ná fullrétti fyrir alla Bandaríkjamenn,“ sagði Eric Holder, dómsmálaráðherra Bandaríkjanna. „Við erum að vinna eins fljótt og auðið er með stofnunum og stjórnvöldum til að tryggja að samkynhneigð hjón í þessum ríkjum fái eins góðan og fjölbreyttan hag og mögulegt er samkvæmt lögum.“
Ákvörðun hæstaréttar þýðir að enn er ekki komin skýr niðurstaða í málið á alríkisvísu, en samkvæmt frétt AFP fréttastofunnar um málið er búist við því að tala þeirra ríkja sem heimila hjónabönd samkynhneigðra muni aukast á næstu misserum.