Abdel Fattah el-Sisi, forseti Egyptalands, segir „ytri öfl“ hafa staðið á bakvið árás sem framin var á egypska herinn á Sínaískaga í gær þar sem um 30 hermenn létu lífið og þrjátíu til viðbótar særðust. Mannfallið var það mesta sem herinn hefur mátt þola í áratugi.
Stjórnvöld í Egyptalandi hafa fyrirskipað neyðarlög á Sínaískaga eftir árásina. Neyðarlögin tóku gildi klukkan þrjú í nótt að íslenskum tíma og verða í gildi á hluta Sínaí í þrjá mánuði. Ákveðið var einnig að loka landamærastöðinni við Rafah á Gaza-ströndinni.
Árásin varð skammt frá bænum El Arish, sem er stærsti bær skagans. Enginn hefur lýst yfir ábyrgð vegna tilræðisins, en grunur beinist að samtökunum Ansar Beit al-Maqdis. Yfir 20 liðsmenn samtakanna hafa verið vegnir í þessum mánuði.
Egypski herinn hefur barist gegn hópi uppreisnarmanna á skaganum, en þeir hafa staðið á bak við margar árásir þar. Lögleysa hefur ríkt á svæðinu frá því Hosni Mubarak var steypt af stóli forseta árið 2011.