Franska lögreglan rannsakar nú andlát hjóna, 98 ára gamals manns og 86 ára gamallar konu, sem fundust látin á heimili sínu í bænum Fabas í héraðinu l'Ariège.
Það var kona sem þrífur heimili hjónanna sem fann þau látin þegar hún kom þangað að þrífa snemma á mánudagsmorgun. Er jafnvel talið að um morð og sjálfsvíg hafi verið að ræða. Maðurinn er bandarískur en konan bresk.
Samkvæmt frétt The Local hafði maðurinn verið skotinn tvisvar en konan einu sinni í höfuðið.
Lögregla fann .22-kalíbera skammbyssu, sem var í eigu mannsins, í húsinu en þau höfðu búið þar í þrjátíu ár.
Telur lögregla að maðurinn hafi fyrst skotið konu sína en síðan framið sjálfsvíg en hjónin verða krufin í dag. Ekkert bendir til þess að til átaka hafi komið. Eiginmaðurinn á að hafa sagt sjúkraþjálfara sínum nýlega að hann væri búinn að fá nóg af lífinu og ef hann myndi ekki deyja fljótlega þá sæi hann sjálfur um að ljúka þessu.