Fyrstu snjókornin sem fylgja stormi er sagður er verða „sögulegur“ féllu í New York borg í morgunsárið. Veðurfræðingar spá allt að 90 cm djúpum snjó í dag. Ljóst er að veðrið mun hafa í för með sér verulega röskun á samgöngum.
Frétt mbl.is: Flugi ekki frestað enn
Veðurstofan gaf út viðvörun vegna veðursins í New York og nágrenni. Því er spáð að veðrið muni herja á austurströndina allt fram á miðvikudag, allt frá Pennsylvaníu til Maine.
Í frétt Reuters segir að þegar hafi yfir 2.000 flugferðum verið frestað vegna veðursins.
„Þetta gæti orðið mesti stormur í sögu þessarar borgar,“ sagði borgarstjóri New York, Bill de Blasio.
De Blasio hvatti íbúa til að vera ekki á ferli og að „búa sig undir verra veður en við höfum áður séð.“
Ríkisstjórinn Andrew Cuomo hvatti fólk til að vinna að heiman í dag þar sem neðanjarðarlestir og strætisvagnar myndu hugsanlega hætta að ganga þegar liði á daginn.
Mesti snjór sem mælst hefur í New York féll 11.-12. febrúar árið 2006. Hann mældist 68 cm djúpur.