Mahmoud Abbas, forseti Palestínu, hyggst heimsækja Svíþjóð í næsta mánuði. Sænskir fjölmiðlar greindu frá því í dag að Stefan Löfven forsætisráðherra hefði boðið Abbas til landsins þann 10. febrúar næstkomandi.
Abbas mun einnig funda með Karli Gústafi Svíakonungi.
Sænska ríkið viðurkenndi Palestínu sem sjálfstætt ríki í októbermánuði síðastliðnum, fyrst Evrópusambandsríkja í Vestur-Evrópu. Ísland viðurkenndi Palestínu árið 2011.
Yfirvöld í Bandaríkjunum sögðu viðurkenninguna ótímabæra en Palestínumenn fögnuðu henni ákaft. Palestínskir embættismenn sögðu að Svíar væru kjarkmiklir og hefðu hvatt önnur ríki Evrópusambandsins til að fara að þeirra fordæmi.