Deila enn um þrjú atriði

Frá fundinum í dag.
Frá fundinum í dag. AFP

Viðræður stórveldanna sex við írönsk stjórnvöld um kjarnorkuáætlun Írana héldu áfram í dag. Enn er óvíst hvort samningar náist áður en fresturinn rennur út í lok morgundagsins, þriðjudags. 

Utanríkisráðherrar ríkjanna sex, Bandaríkjanna, Bretlands, Frakklands, Kína, Rússlands og Þýskalands, funduðu með fulltrúum Írans í svissnesku borginni Lausanne í dag. Að sögn samningamanna er enn deilt um þrjú atriði; í hve langan tíma samningurinn á að gilda, hvernig skuli hátta eftirliti með þvi að samningurinn sé haldinn og loks hvernig staðið verði að því að afnema refsiaðgerðir gegn Íran.

Það er utanríkisráðherra Bandaríkjanna, John Kerry, sem leiðir viðræðurnar. Fundurinn í dag var sá fyrsti þar sem utanríkisráðherrar allra ríkjanna komu saman.

Svo virðist sem sam­komu­lag sé að nást um að tryggt sé að Íran­ar geti ekki fram­leitt kjarnorku vopn, en enn virðist eitt­hvað skorta á sam­komu­lag á póli­tísku hliðinni.

Von­ir standa til þess að hægt verði að skrifa und­ir sam­komu­lag á morg­un.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert