Ehud Olmert, fyrrverandi forsætisráðherra Ísraels, var í dag dæmdur sekur um að hafa þegið mútur. Brotin voru framin þegar Olmert var borgarstjóri í Jerúsalem.
Um var að ræða endurupptöku á máli tengdu bandaríska kaupsýslumanninum, Morris Talansky, sem sagðist hafa afhent Olmert 150.000 Bandaríkjadali til kosningabarátta hans, á fimmtán ára tímabili. Talansky sagðist oft hafa afhent Olmert peninga í umslagi, en ekki vitað hvernig þeim hafi verið ráðstafað.
Hefur niðurstöðunni nú verið snúið við því þegar áður var dæmt í málinu var Olmert sýknaður.
Olmert á yfir höfði sér allt að sex ára fangelsi í öðru mútumáli en hann hefur áfrýjað niðurstöðu þess dóms. Von er á dómi hæstaréttar í því því máli 5. maí.