David Goldberg, eiginmaður Sheryl Sandberg, aðalframkvæmdastjóra Facebook, varð bráðkvaddur á föstudagskvöldið aðeins 47 ára að aldri að sögn bróður hans.
Robert Goldberg tilkynnti lát Davids Goldbergs, sem var framkvæmdastjóri netrannsóknarfyrirtækisins SurveyMonkey, á Facebook á laugardagsmorguninn.
Samkvæmt fréttum bandarískra fjölmiðla liggur dánarorsök ekki fyrir en hann lætur eftir sig eiginkonu og tvö börn.
Fjölmargir minnast hans á Facebook og Twitter, þar á meðal stofnandi Facebook, Mark Zuckerberg, og stofnandi Huffington Post, Arianna Huffington.