Sólin skín. Sjórinn er blár og fagur. En sólstólarnir eru tómir. Ferðaþjónustan í Túnis er að hruni komin. Ferðamenn vilja ekki fara til landsins í kjölfar sprengjuárásar í listasafni sem felldi 22 í mars.
Talað er um að hamfarasumar sé framundan í ferðamennskunni.