Fimm ára gömul stúlka lét lífið þegar styrja stökk inn í bát sem stúlkan var um borð í og lenti á henni af ógnarkrafti. Móðir stúlkunnar og bróðir slösuðust bæði alvarlega.
Stúlkan var með fjölskyldu sinni í bátsferð á Suwanee ánni í Flórída þegar slysið átti sér stað á fimmtudagskvöld. Um er að ræða fyrsta banaslysið sem á sér stað af völdum styrju í ánni en fjórir hafa þó slasast það sem af er ári af völdum fisksins.
Í frétt um málið á vef The Independent fréttaveitunnar kemur fram að styrjur geti orðið tveggja og hálfs metra langar og allt að 90 kíló. Í myndskeiðinu hér fyrir neðan má sjá styrjur stökkva upp úr vatninu í Suwanne ánni fyrr á árinu.