Minnst 37 létust er þota hrapaði

Mynd úr safni
Mynd úr safni AFP

Minnst 37 létust og yfir 60 særðust þegar orrustuþota stjórnarhers Sýrlands brotlenti á markaðstorgi í bænum Ariha sl. mánudag. Flugmaður þotunnar hafði þá skömmu áður varpað sprengjum sínum á skotmörk þar nærri.

Í fyrstu var talið að tala látinna væri nokkuð lægri, eða 31, en nú er hins vegar staðfest að minnst 37 eru látnir. Ekki er útilokað að sú tala hækki enn frekar.

Fréttaveita AFP greinir frá því að þrjú börn eru á meðal þeirra er létust, en markaðstorgið var mjög illa úti eftir brotlendinguna. Sjónarvottar segja mikinn eld hafa brotist út þegar herþotan kom niður.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert