Óprúttinn þjófur skipti 28 milljóna króna demanti út fyrir gervidemant í skartgripaverslun í Hong Kong á föstudag. Á upptökum sést maður á þrítugsaldri virða fyrir sér demantinn á opnunartíma en starfsmaður uppgötvaði seinna að honum hefði verið skipt út.
Enginn hefur verið handtekinn enn sem komið er.
Þjófnuðum úr verslunum hefur fjölgað um 15% í Hong Kong fyrstu sex mánuði ársins samanborið við sama tímabil 2014. Alls telja málin 4.961, samkvæmt tölum lögreglu.