Gestum Oktoberfest fækkaði milli ára

Fótboltamaðurinn Thomas Mueller lét sig ekki vanta á Oktoberfest í …
Fótboltamaðurinn Thomas Mueller lét sig ekki vanta á Oktoberfest í ár. AFP

Þátttaka á stærstu bjórskemmtun heims, Oktoberfest í München í Þýskalandi, var talsvert lakari í ár en undanfarin ár, en skipuleggjendur hátíðarinnar telja að straumur flóttafólks og ákvörðun lestarfyrirtækja að stoppa lestarsamgöngur hafi haft þessi áhrif til viðbótar við verri veðurspá en undanfarin ár.

Viðburðurinn nær yfir 16 daga og voru gestir um 5,9 milljón í ár, en það eru um 400 þúsund færri gestir en í fyrra og hefur gestafjöldinn ekki verið jafn lítill síðan 2009.

Bjórdrykkja dróst einnig saman og fór úr 7,7 milljón lítrum niður í 7,3 milljón lítra. Tíðni glæpa féll aftur á móti um 9% milli ára.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert