Til átaka kom milli lögreglu og þátttakenda í 1. maí kröfugöngu sem farinn var í París í dag. En verkalýðsfélög notuðu kröfugönguna til að mótmæla frumvarpi að nýrri vinnulöggjöf sem fer til umræðu í þinginu á fimmtudag.
Gangan stöðvaðist um tíma þegar lögregla beitti táragasi á ungmenni við Place de la Nation torgið og var loftið mettað táragasi að sögn AFP-fréttastofunnar, þar sem ungmenni með lambhúshettur og skíðagrímur hrópuðu: „Allir hata lögguna“ á meðan þau köstuðu grjóti og flöskum í lögreglu á staðnum.
Telur lögregla að um 17.000 manns hafi tekið þátt í kröfugöngunni í París í dag.
Mikil deilur hafa verið í Frakklandi sl. tvo mánuði vegna breytinga á vinnulöggjöfinni og nokkrir lögreglumenn slösuðust í mótmælum sem haldin voru víðsvegar í landinu sl. fimmtudag.
Vinnulöggjöfin, sem nú er til umræðu í þinginu, er ætlað að hvetja atvinnurekendur til að ráða til sín fleira fólk með því að gera þeim auðveldar um vik að segja upp fólki.
Segja stjórnvöld breytingarnar gerðar til að taka á langtíma atvinnuleysi, en andstæðingar frumvarpsins segja það gera atvinnurekendum kleift að ganga á snið við réttindi starfsmanna hvað varðar laun, hvíldartíma og yfirvinnugreiðslur.