Donald Trump, forsetaefni Repúblikanaflokksins í komandi forsetakosningum í Bandaríkjunum, segir að óháð framboð frambjóðanda úr röðum Repúblikanaflokksins sé til þess fallið að auka sigurlíkur demókrata í kosningunum.
Bill Kristol, ritstjóri Weekly Standard, sagði á Twitter-síðu sinni að sterkur óháður frambjóðandi með sterkt bakland muni bjóða fram í kosningunum. Kristol hefur unnið að því ásamt öðrum íhaldsmönnum sem eru ósáttir við Trump að fá óháðan frambjóðanda til að bjóða sig fram.
Taugaskurðlæknirinn Ben Carson, sem tók þátt í forvali Repúblikanaflokksins fyrir kosningarnar en dró sig síðar úr baráttunni og lýsti yfir stuðningi við Trump, tók undir orð Trumps og vísaði til forsetakosninganna vestra árið 1992.
„Fyrir 25 árum bauð annar Clinton sig fram til forseta og það var framboð aðila úr þriðja flokknum, Ross Perot, sem innsiglaði sigurinn fyrir hann,“ sagði Carson og bætti við: „Væri það ekki kaldhæðnislegt ef það gerðist aftur?“
Gary Johnson, fyrrverandi ríkisstjóri Nýju-Mexíkó, var á dögunum útnefndur frambjóðandi Frjálshyggjuflokks Bandaríkjanna fyrir komandi kosningar. Johnson hefur mælst í kringum 10% fylgi í skoðanakönnunum á milli hans, Clinton og Trump.
„Ég held að Frjálshyggjuflokkurinn tali máli flestra í þessu landi, en þau vita bara ekki að þau séu frjálshyggjufólk,“ sagði Johnson í samtali við Fox News.