Átta tyrkneskir lögreglumenn létust og 45 særðust þegar bílsprengja sprakk við höfuðstöðvar lögreglunnar í bænum Cizre í suðausturhluta landsins.
Yfirvöld í Tyrklandi segja að kúrdískar vígasveitir standi á bak við árásina. Tveir þeirra sem særðust eru í lífhættu en í frétt Anadolu voru það liðsmenn Verkamannaflokks Kúrdistan (PKK) sem frömdu ódæðið.