Hollensk yfirvöld hafa kært bandaríska framleiðendur snjallsímaleiksins Pokémon Go. Ástæðan er sú að höfundar leiksins hafa ekki virt tilmæli yfirvalda um að koma í veg fyrir að hægt sé að veiða pókémona á vernduðum ströndum í strandbænum Kijkduin en þangað flykkjast dyggir spilarar leiksins.
Frá því leikurinn fór í loftið í Hollandi hafa þúsundir leikjanotenda streymt á strendur bæjarins Kijkduin en þar lúra á hverjum degi hundruð eftirsóttra pókémona og bíða þess eins að verða veiddir. Mörgum þykir meira en nóg um átroðninginn af leikjanotendum.
Yfirvöld fara fram á að pókémonar verði ekki sýnilegir á götum úti frá kl. 23 til kl. 7 um morguninn.
Málið verður tekið fyrir dómstól í Hag 11. október nk.