„Þú hugsar ekki um annað en kynlíf“

Kelly og Gringrich ræða málin.
Kelly og Gringrich ræða málin. Skjáskot

Repúblikaninn Newt Gingrich sakaði sjónvarpsmanninn Megyn Kelly, fréttamann á Fox-sjónvarpsstöðinni, um að vera með kynlíf á heilanum. Þetta fullyrti Gingrich í sjónvarpsviðtali sem Kelly tók við hann.

Gingrich hélt því fram að hún væri ekki hlutlaus í fréttaflutningi sínum eftir að hún fjallaði um konur sem hafa kvartað undan kynferðislegu ofbeldi af hendi Donald Trump, forsetaframbjóðanda repúblikana.

Kelly svaraði því til að hún væri ekki heilluð af kynlífi heldur hugsaði hún eingöngu um hver yrði næsti forseti Bandaríkjanna. Hún hefur áður reitt Trump til reiði með því að spyrja hann út í viðhorf hans gagnvart konum.

Trump hefur oft gagnrýnt Kelly opinberlega eftir að hún spurði hann út í ummæli þess efnis að hann kallaði konur „feit svín“.

Gingrich hélt því fram að fjölmiðlar væru örvæntingarfullir að reyna að klína ásökunum á Trump, sem hann hafnaði jafnharðan.

„Þú hugsar ekki um annað en kynlíf og þér er alveg sama um opinbera stjórnsýslu,“ sagði Gingrich við Kelly en sjónvarpskonan virkaði undrandi á ummælunum.

„Veistu hvað, ég er ekki heilluð af kynlífi. Mér er hins vegar annt um það að vernda konur. Einnig er ég hugsi yfir því hver verður forseti og veit að Bandaríkjamenn vilja vita hvernig manneskja það verður,“ svaraði Kelly.

Gingrich svaraði því til hvers vegna fjölmiðlar fjölluðu ekki um ásakanir þess efnis að Bill Clinton væri kynferðisglæpamaður.

Kelly benti á að Bill væri ekki í framboði, heldur eiginkona hans, Hillary Clinton. Að lokum benti Kelly Gingrich á að hann þyrfti að ná stjórn á skapi sínu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert