15 ára unglingur hefur viðurkennt að hafa myrt með hnífi konu á fimmtugsaldri og 14 ára dreng í Kristiansand í Noregi á mánudag. Að sögn norsku lögreglunnar tilheyrðu drengirnir tveir sama kunningjahópi, en ekkert bendir hins vegar til að þeir hafi þekkt til konunnar.
Það var tíu mínútur yfir fjögur í á mánudagseftirmiðdag sem þau Tone Ilebek og hinn fjórtán ára gamli Jacob Abdullahi Hassan fundust liggjandi í blóði sínu í nágrenni Wilds Minne-skólans í Kristiansand. Þau voru flutt á sjúkrahús með hraði, þar sem þau létust skömmu síðar af sárum sínum.
Frétt mbl.is: Tveir myrtir við skóla í Kristiansand
Allt lögreglulið Kristianasand tók þátt í leitinni að árásarmanninum og báðu lögregluyfirvöld í gær þá sem verið hefðu í nágrenni skólans að gefa sig fram.
Það var svo um níuleytið í gærkvöldi, rúmum sólarhring eftir að morðin voru framin, sem lögreglan handtók árásarmanninn. Fréttastofa norska ríkissjónvarpsins NRK hefur eftir lögregluyfirvöldum að 15 ára drengur hafi játað að hafa stungið tvo einstaklinga með hnífi og gat hann veit ítarlega lýsingu á atvikinu, sem Terje Skaar yfirmaður rannsóknarlögreglu í umdæminu segir lögreglu taka trúanlega.
Skaar segir drengina tvo hafa tilheyrt sama kunningjahópi, en að ekkert bendi til að árásarmaðurinn hafi þekkt Ilbekk, sem var úti að viðra hund sinn þegar hún var myrt.
Lögregla telur drengina hafa verið báða um borð í strætisvagni sem ók að skólanum á mánudag, en sjónarvottur segist hafa séð norskan dreng ganga frá stoppistöðinni í átt að skólanum stuttu áður en morðin voru framin.
Lögregla hefur ekki viljað tjá sig um ástæður árásanna, en hefur sagt drenginn hafa veit ítarlega skýringu við yfirheyrslur. Hún telur ekki fleiri eiga aðild að árásunum.