Varnarmálaráðherra Bólivíu sagði í dag að flugslysið skammt frá borginni Medellinn í síðustu viku væri ekkert annað en morð. 71 lét lífið þegar flugvél á leið frá Brasilíu til Kólumbíu hrapaði en ráðherrann sakar flugmanninn um vítavert gáleysi.
„Þetta var greinilega ekki slys. Þetta var morð. Það sem gerðist rétt við Medellin var morð,“ sagði varnarmálaráðherrann, Reymi Ferreira, við fjölmiðlamenn í heimalandi sínu í dag.
Flugvél LaMia-flugvélagsins fórst skammt frá borginni Medellin í Kólumbíu. 22 leikmenn brasilíska knattspyrnuliðsins Chapecoense voru í flugvélinni en þrír þeirra, varamarkvörðurinn Jakson Ragnar Fullmann, 24 ára, varnarmaðurinn Helio Neto sem er 31 árs, og miðjumaðurinn Alan Ruschel, 27 ára, en allir hinir létu lífið.
LaMia-flugfélagið var upphaflega skráð í Venesúela, en flutti höfuðstöðvar sínar svo til Bólivíu. Flugleyfið hefur verið tekið tímabundið af félaginu á meðan málið er til rannsóknar en þar er meðal annars athugað hvort flugstjórinn hafi vísvitandi lagt af stað með of lítið eldsneyti.
Ferreira gagnrýndi flugmanninn, sem lést í slysinu, fyrir að hunsa reglur sem skikkuðu hann til að taka bensín á leiðinni:
„Það er gefur auga leið að ef flugmaðurinn hefði fylgt reglum og lent í Cobija eða Bogota er mögulegt að þetta hræðilega slys hefði aldrei orðið.“
Saksóknarar í Bólivíu, Brasilíu og Kólumbíu rannsaka málið í sameiningu.