Störfum mun fækka og draga mun úr fjárfestingu og innflutningi þeirra þjóða í Evrópu sem draga sig úr Evrópusambandinu og kjósa popúlista til valda. Þetta sagði François Hollande, forseti Frakklands, á fundi á Spáni með Mariano Rajoy, forsætisráðherra Spánar.
Hollande varaði við að ef öfgafullir þjóðernissinnar kæmust til valda í í löndum innan Evrópusambandsins myndi það hafa verulega slæm áhrif á landið í heild sinni.
Þessi ummæli Hollande koma stuttu eftir að fylgi Marine Le Pen, forsetaframbjóðanda Frönsku þjóðfylkingarinnar, jókst umtalsvert samkvæmt nýrri skoðanakönnun. Einnig hefur fylgi hins hollenska Geert Wilders, forsetaframbjóðanda og formanns Frelsisflokksins, aukist mikið. Þau fylgja bæði harði innflytjendastefnu.
Þau bæði hafa gefið það út að ef þau muni komast til valda ætla þau að draga þjóðirnar úr Evrópusambandinu. „Það mun binda enda á verslun og falskt fullveldi myndi þýða færri störf, minni vöxt og skert frelsi,“ sagið Hollande jafnframt.
Á fundi sínum með forsætisráðherra Spánar nýtti Hollande tækifærið og bauð Rajoy á fund með Angelu Merkel, kanslara Þýskalands, 6. mars næstkomandi í Versölum í Frakklandi.