Norðmenn hafa komið saman og safnað næstum 160 þúsund norskum krónum, sem samvarar um tveimur milljónum íslenskra króna, til að reisa hið ástsæla Tröllatyppi við, reðurlaga bergdrangan sem eyðilagðist um helgina af völdum ódæðismanna.
Bergmyndunin er kölluð „Trollpikken“ eða Tröllatyppið og er að finna í Eigersund suður af Stafangri í Noregi. Á laugardag sá hópur fólks sér svo til mikillar skelfingar að steininn var brotinn og typpið því fallið til jarðar eins og kemur fram í grein mbl um brotið um helgina. Í sárinu sem myndaðist sáust holur sem sérfræðingar telja að séu eftir borvél. Því þykir ljóst að bergmyndunin hafi verið skemmd að yfirlögðu ráði.
Stuttu eftir að typpið brotnaði hóf athafnamaður af svæðinu hópfjármögnun, til að setja typpið aftur saman. Tveimur dögum síðar hafa næstum þúsund manns svarað ákallinu „Tröllatyppið mun rísa á ný“ og næstum tvær milljónir íslenskra króna hafa safnast, um 160 þúsund norskar krónur.
Typpið hafði mikið aðdráttarafl og hefur dregið margan ferðamanninn á Eigersund og svæðið í kring og því var eyðileggingin mikill missir fyrir ferðamannaþjónustu svæðisins.