Jarðskjálfti af stærðinni 6,7 skók suðvesturhluta Tyrklands og grísku Dodecanese-eyjarnar á ellefta tímanum í kvöld. AFP-fréttastofan greinir frá því að minnst tveir hafi látið lífið í Grikklandi í skjálftanum.
Bandaríska jarðfræðistofnunin greinir frá því að upptök skjálftans hafi verið um tíu kílómetrum suður af Bodrum í Tyrklandi og 16,2 kílómetrum austur af grísku eyjunni Kos. Upptökin voru á tíu kílómetra dýpi.
Flóðbylgjur lentu á strandlengju Tyrklands næst upptökum skjálftans, meðal annars á Marmaris sem hefur verið vinsæll áfangastaður ferðamanna, þ.m.t. Íslendinga.
Video Added from #Bodrum#Tsunami #Earthquake pic.twitter.com/3bR5tHnieg
— Global News (@GlobalZarfati) July 20, 2017