Lögreglan á Ítalíu hefur handtekið tvo þjófa í bænum Tórínó fyrir að ræna fjölda hraðbanka í bænum. Á meðfylgjandi myndskeiði, sem BBC birtir á Twitter-reikningi sínum, má sjá hvernig þjófarnir láta til skara skríða og sprengja upp hraðbankann.
Annar mannanna breiðir yfir öryggismyndavél við hraðbankann en þar að auki brugðu þjófarnir á það ráð að hylja andlit sín með grímum sem líkjast Donald Trump Bandaríkjaforseta.
Sem fyrr segir hefur lögregla handtekið þjófana tvo sem sagðir eru bræður.
Robbers wearing Trump masks arrested for stealing from cash machines in Italy pic.twitter.com/7z1IsnyxcG
— BBC News (World) (@BBCWorld) July 25, 2017