Herþyrla á vegum Bandaríkjahers hvarf á heræfingu sem fram fór í kvöld á hafsvæði við Hawaii í Bandaríkjunum. Fimm eru um borð og er óttast um afdrif þeirra.
Fram kemur í frétt AFP að þyrlan, sem er af gerðinni UH-60, hafi horfið út af eyjunni Oahu. Hún hafði tekið þátt í æfingu með annarri þyrlu þegar hún datt úr talsambandi og út af ratsjá.
Leit er hafin að þyrlunni og hefur flugvél frá bandaríska landgönguliðinu meðal annars verið send af stað.