Tveir létust og 120 slösuðust, þar af tuttugu alvarlega, er veislutjald fauk í Austurríki í mjög slæmu veðri.
Atvikið átti sér stað í Sankt Johann am Walde í norðurhluta landsins seint í gærkvöldi. Um 650 manns voru inni í tjaldinu er slysið varð.
„Gríðarlegur vindur reif tjaldið að mestu í burtu,“ segir í yfirlýsingu lögreglunnar vegna málsins. Tveir létust er brak úr tjaldinu lenti á þeim.