Lögreglan í Kaupmannahöfn á von á því að geta veitt frekari upplýsingar um líkið sem fannst í sjónum við Amager síðdegis. Ekki er vitað hvort þetta er lík sænsku blaðakonunnar Kim Wall sem hefur verið saknað frá því 10. ágúst.
Í frétt Politiken í morgun er vísað í Twitter-færslu lögreglunnar um að hún eigi von á því að vita meira um lík konunnar síðdegis en á þessari stundu sé ekki hægt að veita frekari upplýsingar. Fjölmiðlum verði ekki veitt viðtöl þangað til.
Það var hjólreiðamaður á ferð meðfram sjávarsíðunni sem fann líkið í sjónum síðdegis í gær. Um konu er að ræða en líkið er aflimað, vantar höfuð, hendur og fætur.
Peter Madsen, eigandi og skipstjóri kafbátsins, sem situr í gæsluvarðhaldi vegna andláts sænsku blaðakonunnar Kim Wall, breytti framburði sínum þegar hann kom fyrir dómara 12. ágúst en áður hafði hann haldið því fram að hann hafi sett Wall á land í Kaupmannahöfn.
Í gærmorgun greindi lögreglan í Kaupmannahöfn frá hluta af því sem Madsen sagði fyrir luktum dyrum í réttarsalnum 12. ágúst. Þar kom fram að Wall hafi látist af slysförum um borð og hann hafi hent henni fyrir borð einhvers staðar í Køge-flóa.