Forsætisráðherra Japans, Shinzo Abe, hefur boðað til þingkosninga í landinu. Þetta kom fram á blaðamannafundi í Tókýó sem nú stendur yfir. Þing verður rofið 28. september.
Kosningarnar verða haldnar 22. október. Abe hefur verið forsætisráðherra í fimm ár.
Vinsældir hans hafa aukist mikið að undanförnu og samkvæmt skoðanakönnunum nýtur flokkur hans fylgis 50% kjósenda.