Dag Hammarskjöld, fyrrverandi framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, var myrtur. Þetta kemur fram í nýútkominni skýrslu Sameinuðu þjóðanna.
Hammarskjöld, sem var sænskur ríkisborgari, gegndi starfi framkvæmdastjóra SÞ frá 1953-1961, þegar hann lést í flugslysi í Sambíu ásamt 15 öðrum. Stuttu eftir slysið kom upp orðrómur því tengdu að vélinni hefði verið grandað.
Útgáfa bókarinnar „Who killed Hammarskjöld?“ árið 2011, eftir rithöfundinn og blaðamanninn Susan Williams, vakti áhuga fólks á málinu á ný eftir að þar komu fram vitnisburðir sem ekki höfðu komið til athugunar áður.
Allsherjarþing SÞ samþykkti árið 2014 einhljóða tillögu um að skipa sjálfstæða nefnd sérfræðinga til að skoða nýjar upplýsingar um flugslysið sem varð Hammarskjöld að bana. António Guterres, framkvæmdastjóri SÞ, tók við skýrslunni í síðasta mánuði sem inniheldur meðal annars gögn sem koma frá ríkisstjórnum Bretlands, Belgíu, Kanada og Þýskalands.
Í umfjöllun The Guardian um skýrsluna kemur fram að talstöðvarsamskipti breskra og bandarískra yfirvalda gefa til kynna hvað átti sér stað í aðdraganda brotlendingar flugvélarinnar. Vélin var á leið til Kongó þar sem Hammarskjöld var á leið á friðarsamningafund með uppreisnarmönnum frá Katanga-héraði og stjórnarher þar í landi.
Í skýrslunni kemur fram að þrjár orrustuvélar á vegum Frakka voru nýttar til árása á þessu svæði. Franskur diplómati, Claude de Kemoularia, greindi skýrsluhöfundi frá samtali sínu við belgískan flugmann, sem var málaliði uppreisnarmanna, sem hafi skotið viðvörunarskotum að vél sem var á svipuðum stað og flugvélin sem Hammarskjöld ferðaðist með.
Höfundur skýrslunnar, Mohamed Chande Othman, fyrrum forseti hæstaréttar Tansaníu, segir sönnunarbyrðina nú hvíla hjá breskum og bandarískum yfirvöldum, þar sem þau búi yfir talstöðvarupplýsingum sem sýna hvað átti sér stað í raun og veru.