Telja sprengjuna hafa verið fjarstýrða

Blómum og kertum hefur verið komið fyrir í minningu Daphne …
Blómum og kertum hefur verið komið fyrir í minningu Daphne Caruana Galizia í Valletta á Möltu. AFP

Lögreglan á Möltu telur að sprengjan, sem varð blaðakonunni Daphne Caruana Galizia að bana fyrr í vikunni, hafi verið fjarstýrð. Sprengjunni var komið fyrir undir bíl hennar og hann sprengdur í loft upp er hún settist inn í hann skammt frá heimili fjölskyldunnar.

Car­una Galizia var þekktur bloggari í heimalandinu og harður gagnrýnandi stjórnvalda á Möltu og hefur morðið á henni vakið mikinn óhug hjá íbúum eyjunnar. Vann hún m.a. ít­ar­leg­ar frétt­ir um spill­ing­ar­mál tengd­ for­sæt­is­ráðherra lands­ins, Joseph Muscat, og nán­um sam­starfs­mönn­um hans og fjöl­skyldu.

Muscat hét því á miðvikudag að verðlauna hvern þann sem gæti veitt upplýsingar um morðið.

Blaðamenn komu saman fyrir utan þinghúsið í Valletta á Möltu …
Blaðamenn komu saman fyrir utan þinghúsið í Valletta á Möltu í dag og minntust Daphne Caruana Galizia. AFP

Hvetja ráðherrann til að segja af sér

Synir Car­una Galizia gefa hins vegar lítið fyrir það loforð og hafa þess í stað hvatt forsætisráherrann til að segja af sér. Hann eigi að taka pólitíska ábyrgð á fyrsta slíka morðinu á blaðamanni á Möltu frá því að eyjan hlaut sjálfstæði árið 1964.

Muscat hefur hafnað því boði og er nú í Brussel á fundi með ráðamönnum annarra ESB ríkja. Talsmaður forsetans sagði hins vegar í dag að rannsókn málsins miðaði áfram.

„Sönnunargögn benda til þess að sprengja hafi verið sett undir bílinn og að hún hafi verið fjarstýrð,“ hefur Reuteres eftir talsmanninum, sem bætti við að erlendir sprengjusérfræðingar yrðu fengnir til að bera kennsl á GSM-símann sem var notaður til að kveikja í sprengjunni.

Tekur vikur að safna sönnunargögnum

Lawrence Cutajar, lögreglustjóri Möltu, segir enga hafa enn verið handtekna í tengslum við rannsóknina og að of snemmt væri að velta ástæðum morðsins fyrir sér. Það muni taka fleiri vikur að safna sönnunargögnunum saman.

Einn sona Car­una Galizia sagði á Facebook-síðu sinni í gær að hún hafi verið ráðin af dög­um vegna skrifa sinna. Lýsti hann því einnig hvernig hann hefði hlaupið í ör­vænt­ingu í kring­um bíl móður sinn­ar þar sem hann stóð í ljós­um log­um í gær. Hann reyndi að opna hurð bíls­ins en það var orðið of seint.  

Son­ur henn­ar, Matt­hew Car­u­ana Galizia, sem einnig er blaðamaður og kom meðal ann­ars að rann­sókn á Pana­maskjöl­un­um, seg­ir Muscat vera sam­sek­an um morðið á móður hans.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert