Einn diplómata Norður-Kóreu segir það ekki á samningaborðinu að Norður-Kórea hætti við kjarnorkuáætlun sína og að Bandaríkin þurfi að venja sig við það lifa í sátt og samlyndi við kjarnorkuvædda Norður Kóreu.
Sagði diplómatinn, Choe Son-hui, að þetta væri „eina leiðin til að tryggja varanlegan frið á Kóreuskaga“.
Mike Pompeo, forstjóri CIA, hafði áður varað við því að það væri væntanlega aðeins mánaðaspursmál hvenær norður-kóreski herinn hefði öðlast tæknina til að skjóta eldflaugum á Bandaríkin. Hann ítrekaði þó að bandarísk stjórnvöld vildu frekar leita diplómatískra lausna á vandanum eða beita refsiaðgerðum, en sagði að hernaðarlausn engu að síður koma til greina.
Cho var meðal fundarmanna á ráðstefnu í Moskvu og endurtók hún þar þau orð annarra norður-kóreskra embættismanna að kjarnavopnin væru spurning um „líf eða dauða“ fyrir ríkið. Fyrr á þessu ári sagði Cho hins vegar að norður-kóresk stjórnvöld væru tilbúin að ræða málin við Bandaríkin ef aðstæður væru réttar.
Nú sagði hún Norður-Kóreu hins vegar telja viðskiptaþvinganir Sameinuðu þjóðanna vera yfirgang og stríðsstefnu.
Viðskiptaþvinganir gegn Norður-Kóreu hafa verið hertar frá því að norður-kóresk yfirvöld settu aukin kraft í kjarnorkuáætlun sína fyrr á þessu ári.
Áströlsk stjórnvöld greindu frá því í dag að þau hefðu fengið bréf frá norður-kóreskum ráðamönnum sem þau telja einnig hafa verið sent til annarra ríkja, en þar eru ríkin hvött til að draga úr tengslum sínum við Bandaríkin.
Pompeo sagði í gær hæfni Norður-Kóreu vera orðna það mikla að frá bandarísku sjónarmiði ættu stjórnvöld að bregðast við eins og ríkið væri við það að ná takmarki sínu.
Bandaríska leyniþjónustan hafi fylgst vel með framvindu mála í gegnum tíðina, en eldflaugaþekking Norður-Kóreu vaxi nú of hratt til að hægt sé að vita með vissu hvenær þeir nái takmarki sínu.
„Þegar maður er farinn að tala um mánuði þá er hæfni okkar til að meta á hvaða stigi þetta er í raun orðin málinu óviðkomandi,“ sagði Pompeo.
Trump væri hins vegar reiðubúinn að tryggja að Kim geti ekki ógnað Bandaríkjunum. „Með hernaðarafli ef það reynist nauðsynlegt,“ bætti Pompeo við.