Nokkrir eru slasaðir eftir að maður vopnaður hnífi réðst að fólki í miðborg München í Þýskalandi í morgun. Maðurinn flúði af vettvangi og leitar allt tiltækt lögreglulið í borginni hans nú. Samkvæmt fréttavef The Daily Bild er enginn hinna slösuðu með lífshættulega áverka.
Ekki er vitað hvert tilefni árásinnar var.