Karlmaður frá Pennsylvaníu hefur fengið hinstu ósk sína uppfyllta og verið jarðaður með ostasteik af veitingastaðnum Pat's King of Steaks. Ostasteikin er hlaðin kjöti og osti í brauði.
Barnabarn mannsins segir í samtali við The Philadelphia Inquirer að hafi hans hafi ekki hikað þegar hann var spurður hvað hann vildi hafa með sér í kistunni. „Hvað heldurðu? Ostasteik frá Pat's! En engan lauk því þeir myndu ásækja mig.“
Maðurinn var lengi mikill áhugamaður um ostasteikina á þessum tiltekna veitingastað og bað fjölskyldu sína oft að aka langan veg til að sækja þær fyrir sig.
Hann lést þann 10. október, 76 ára að aldri. Sonur hans og barnabarn sóttu umbeðna steik á veitingahúsið daginn fyrir jarðarförina og komu henni fyrir í kistunni við hlið hans.