Lögregla í Kaupmannahöfn fann handlegg á hafsbotni í Køgeflóa fyrir utan Kaupmannahöfn í dag. Handleggurinn fannst á því svæði þar sem talið er að kafbátur danska uppfinningamannsins Peter Madsen hafi siglt áður en honum var sökkt í ágúst. Hann situr í gæsluvarðhaldi grunaður um að hafa myrt sænsku blaðakonuna Kim Wall. Danska ríkissjónvarpið greinir frá.
Lögreglan segist ekki vita hverjum handleggurinn gæti tilheyrt. Madsen hefur ítrekað neitað að hafa myrt Wall, hann hefur gefið margar og mismunandi skýringar en hann hefur viðurkennt að hafa sundurlimað lík hennar og hent í sjóinn.
„Við vitum ekki enn hverjum handleggurinn tilheyrir og vitum heldur ekki hvort þetta er hægri eða vinstri handleggur. Hins vegar göngum við út frá því að hann tengist kafbátsmálinu,“ segir lögreglumaðurinn Jens Møller Jensen í tilkynningu.
Handleggurinn verður rannsakaður frekar.