Hollensk-eþíópískur ríkisborgari var í dag dæmdur í lífstíðarfangelsi í Hollandi fyrir stríðsglæpi sem hann framdi í blóðugum þjóðernishreinsunum sem fram fóru í Eþíópíu í lok áttunda áratugarins. Tímabilið er kallað „rauði hryllingurinn“. Eshetu Alemu, 63 ára, hefur neitað sök og sagt yfirvöld hafa farið mannavillt.
Niðurstaða dómsins er sú að Alemu hafi gerst sekur um stríðsglæpi sem hafi ógnað öðrum borgurum. Hann hafi m.a. rænt þá lífinu, eins og það var orðað hjá dómaranum Mariette Renckens. Sagði hún ekkert annað en lífstíðarfangelsisdóm koma til greina.
Saksóknarar telja að Alemu hafi verið handbendi einræðisherrans Mengistu Haile Mariam í Gojjam-héraði í norðvesturhluta Eþíópíu á áttunda áratugnum. Hrottalegir atburðir áttu sér stað undir hans stjórn, m.a. pyntingar og morð á andstæðingum hans.
Alemu hefur verið búsettur í Hollandi í mörg ár og hefur fengið þar ríkisborgararétt. Saksóknarar telja að fórnarlömb Mengistu og fylgismanna hans hafi verið að minnsta kosti 321. Þá hafi margir verið fangelsaðir án dóms og laga og þurft að þola ómannúðlega meðferð í fangelsum.
Vitni að hroðaverkunum segja að pyntingarnar hafi m.a. falist í barsmíðum og spörkum, fórnarlömbin hafi verið bundin og þau barin með spýtum.