Bandaríska fjarskiptanefndin (e. Federal Communications Commission) hefur samþykkt endurskoðun á reglum um nethlutleysi. Var þetta samþykkt í nefndinni með þremur atkvæðum gegn tveimur. Tillagan var sett fram af repúblikananum Ajit Pai sem segir þetta muni binda enda á „strangar“ reglur sem komi í veg fyrir fjárfestingar og nýsköpun.
Barack Obama, fyrrum Bandaríkjaforseti, kallaði eftir því árið 2014 að fjarskipanefndin setti strangar reglum um nethlutleysi. Þá var fjarskiptafyrirtækjum sem veita netþjónustu gert óheimilt að gera upp á milli aðila með því t.d. að selja fyrirtækjum á borð við Netflix aukin nethraða fyrir viðskiptavini sína.
Demókratinn Mignon Clyburn, einn þeirra sem kaus gegn tillögunni, segir hana til þess fallna að afhenda handfylli stórfyrirtækja lykla af internetinu. Heitar umræður áttu sér stað í nefndinni um tillöguna fyrir kosningu.