Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði í dag að bandaríska leyniþjónustan CIA hefði bjargað „mörg þúsund mannslífum“ í Rússlandi. Leyniþjónustan lét Rússa fá gögn sem urðu til að hægt var að koma í veg fyrir mannskæð hryðjuverk í Pétursborg í fyrradag.
Trump segir þetta væri dæmi um hvað sé hægt að gera þegar Washington og Moskva vinna saman.
Vladimir Pútín, forseti Rússlands, þakkaði Trump í gær fyrir að hafa varað við árásinni. Í frétt AFP-fréttaveitunnar segir að gögnin hafi komið lögregluyfirvöldum í Rússlandi að gagni við að uppræta hóp hryðjuverkamanna á vegum hryðjuverkasamtakanna sem kenna sig við ríki Íslams. Var hópurinn að leggja á ráðin um sjálfsmorðsárás sem átti að framkvæma hinn 16. desember.
„Þeir náðu að handtaka hryðjuverkamennina áður en þeir náðu að framkvæma sín voðaverk. Enginn særðist, sem er frábært og þannig á þetta að vera,“ sagði ánægður Trump.