Faðir átta ára stúlku sem stungin var til bana í West Midlands á Bretlandseyjum á laugardag hefur verið handtekinn grunaður um ódæðið. Faðirinn var sjálfur fluttur á sjúkrahús með stungusár á kviði.
Lögreglan var kölluð að húsi í Brownshill í West Midlands á laugardagskvöldið. Er að var komið fundust stúlkan og faðirinn þar í blóði sínu. Þau voru bæði flutt á sjúkrahús en stúlkan lést skömmu síðar af sárum sínum.
Í frétt Sky-sjónvarpsstöðvarinnar um málið segir að skömmu áður en lögreglan var kvödd á vettvang hafi faðirinn birt mynd af dóttur sinni á Facebook. Á henni sást hún sitja í rúmi, brosandi með pitsu fyrir framan sig.
Enn hefur ekki verið hægt að yfirheyra föðurinn.