David Ige, ríkisstjóra Havaí, var greint frá því að skilaboð um eldflaugaárás hefðu farið út fyrir mistök tveimur mínútum eftir að skilaboðin fóru í loftið. Engu að síður liðu 17 mínútur þar til skrifstofa ríkisstjórans sendi frá sér leiðréttingu.
Ástæða tafarinnar var sú að ríkisstjóranum gekk illa að muna lykilorðið að Twitter-reikningi sínum.
Yfirvöld almannavarna á Havaí hafa ítrekað beðist afsökunar á því að hafa óvart sent út skilaboð um yfirvofandi eldflaugaárás á eyjarnar laugardaginn 13. janúar.
Skelfing greip um sig hjá mörgum og gripu sumir vatn og fóru ofan í kjallara eða að neyðarskýlum á eyjunum. Fólk hefur lýst því að það raunverulega hélt að það væri að fara að deyja.
Ige viðurkenndi í gær að töfin sem varð á því að leiðréttingin var send út hafi verið því að kenna að hann mundi ekki lykilorð sitt. „Ég verð að viðurkenna að ég vissi ekki lykilorðið að Twitter-reikningi mínum og það er ein af þeim breytingum sem ég hef gert,“ sagði Ige í samtali við dagblaðið Honolulu Star Advertiser.
Almannavarnir á Havaí segja einnig öðrum verkferlum hafa verið breytt, en það tók stofnunina hálftíma að senda frá sér skilaboð þar sem boðin um eldflaugaárásina voru afturkölluð.