Tyrknesk stjórnvöld vilja gelda kynferðisbrotamenn með lyfjagjöf. Þessi umræða er ekki ný af nálinni en árið 2016 var það sama uppi á teningnum en lög um slíkt voru ekki samþykkt. Nýverið braust út mikil reiði meðal almennings í Tyrklandi eftir að fjölmörg kynferðisbrot gegn börnum komu upp.
Stjórnvöld hafa sett þetta mál aftur á dagskrá og það verður tekið fyrir á næstu dögum, segir Abdulhamit Gul, dómsmálaráðherra Tyrklands. Dómstólar munu jafnframt ákvarða lengd lyfjagjafar sem á að koma í veg fyrir kynferðislega löngun.
Lyfjagjöfin mun ekki koma alfarið í veg fyrir kynferðislega örvun heldur bælir hana niður.
Kynferðisbrotum gegn börnum hefur fjölgað í Tyrklandi. Árið 2006 voru þau 3.778 en tíu árum síðar árið 2016 voru þau 21.189 talsins, samkvæmt tölum frá dómsmálaráðuneytinu.
Ekki eru allir sammála að lyfjagjöf sé hið eina rétta í stöðunni. Kvenréttindahreyfingar í Tyrklandi hafa lagst harðlega gegn fyrirhuguðum aðgerðum á samfélagsmiðlum og segja þær ekki samræmast mannréttindum.