Karlmaður frá Fílabeinsströndinni sem á tíu ára gamlan son sem reynt var að smygla til Spánar í ferðatösku fyrir tveimur árum verður ekki dæmdur til fangelsisvistar.
Saksóknarar höfðu í upphafi farið fram á að Ali Ouattara færi í fangelsi fyrir smyglið. Hins vegar fundu þeir engar sannanir fyrir því að faðirinn hefði vitað að smygla ætti syni hans í ferðatösku og var hann því aðeins dæmdur til sektargreiðslu.
„Hvorki faðir minn né ég vissum að það ætti að setja mig í ferðatösku,“ sagði drengurinn við dómara málsins.
Ouattara sat í varðhaldi í mánuð. Hann segir að sér hafi verið sagt að syni hans yrði smyglað til Spánar í bíl.
Drengurinn segir að erfitt hafi verið að anda í ferðatöskunni en í hana var hann settur til að smygla honum frá Marokkó og til Ceuta sem tilheyrir Spáni.
Landamæraverðir stöðvuðu för konu sem dró á eftir sér þunga ferðatösku. Er taskan var gegnumlýst sást að í henni var barn í fósturstellingu.
Drengurinn býr nú ásamt móður sinni í Frakklandi.