Tíst frá erkibiskupi í New Jersey hefur vakið mikla athygli. Hann skrifaði einfaldlega: „Góða nótt elskan. Ég elska þig.“
Talsmaður biskupsins hefur nú varpað ljósi á málið og segir að skilaboðin hafi verið ætluð systur hans. Færslunni var síðan eytt.
Biskupinn Joseph Tobin á að sögn talsmanns síns átta yngri systur. Hann skrifar mjög sjaldan færslur á Twitter.
Tobin er 65 ára. Hann var gerður að erkibiskup í Newark árið 2017.
Flestir eru á því að skilaboðin hafi verið skemmtileg.
AP-fréttastofan greinir frá.