Afganskur Donald Trump veldur usla

Foreldrar afgansks drengs nefndu son sinn í höfuðið á auðkýfingnum Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, í þeirri von að hann muni feta í fótspor forsetans. 

Hugmyndina fékk faðir Trumps, Sayed Assadullah Pooya, og vonast hann til þess að sonurinn njóti jafn mikillar velgengni og forsetinn á sinni framabraut. 

Donald litli Trump hefur hins vegar komið af stað fári á samfélagsmiðlum eftir að afrit af skilríkjum hans voru birt á Facebook sem sýna nafn hans. 

Sayed hafa meðal annars borist líflátshótanir fyrir að hafa gefið syni sínum „heiðið“ nafn. Þá hafa nágrannar hans vinsamlegast beðið hann um að flytja burt. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert