Fyrrverandi herforingi Bosníu-Serba, Ratko Mladic, áfrýjaði í dag lífstíðardómi stríðsglæpadómstólsins í Haag. Hann fer fram á að hann verði sýknaður af öllum ákærum.
Lögmaður Mladic bað dómstólinn í Haag um að hinir „röngu dómar“ yrðu gerðir ógildir eða þeim hnekkt.
Mladic, sem stundum er kallaður slátrarinn frá Bosníu, var í nóvember á síðasta ári sakfelldur af stríðsglæpadómstólnum í Haag fyrir þjóðarmorð í stríðunum sem geisuðu á Balkanskaganum í lok 20. aldar.
Ákæran á hendur honum var í ellefu liðum. Þar á meðal fyrir glæpi gegn mannkyninu. Hann var sakfelldur fyrir fjöldamorð á rúmlega sjö þúsund múslimum í Bosníu, karlmönnum og drengjum, í borginni Srebrenica árið 1995 og umsátrið um borgina Sarajevo þar sem yfir 10 þúsund manns létu lífið.